Stofnskrá Byggðasafns Árnesinga
STOFNSKRÁ
fyrir
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA
1.gr.
Safnið heitir Byggðasafn Árnesinga. Starfssvæði þess er Árnesþing.
2.gr.
Byggðasafn Árnesinga er í eigu Héraðsnefndar Árnesinga og hefur aðsetur á Eyrarbakka og rekur þar byggðasafn. Safninu er auk þess heimilt að vera með sýningar og aðra starfsemi á fleiri stöðum í Árnessýslu.
3.gr.
Hlutverk Byggðasafns Árnesinga er að safna, skrá, varðveita, forverja og rannsaka minjar um byggða-, menningar- og atvinnusögu Árnessýslu og kynna þær almenningi.
Leggja skal áherslu á söfnun og varðveislu muna, sem telja má einkennandi eða hafa sögulegt gildi fyrir Árnessýslu. Þessa muni skal kynna á sýningum safnsins.
Byggðasafn Árnesinga skal að öðru leyti starfa samkvæmt ákvæðum safnalaga nr. 106/2001 og þjóðminjalaga nr. 107/2001 og reglugerðum og reglum sem grundvallast á þeim lögum. Safnið starfar eftir siðareglum ICOM alþjóðasamtaka safna og safnamanna.
4.gr.
Héraðsnefnd Árnesinga kýs þrjá menn í stjórn Byggðasafns Árnesinga og jafnmarga til vara á árlegum vorfundi sínum.
Stjórn Byggðasafns Árnesinga heldur fundi eftir því sem þurfa þykir og ræður meirihluti atkvæða úrslitum mála á stjórnarfundum. Stjórnarmenn skipta með sér verkum á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar og kjósa stjórninni formann, varaformann og ritara.
5.gr.
Stjórn Byggðasafns Árnesinga starfar í umboði Héraðsnefndar Árnesinga. Hún hefur á hendi yfirstjórn byggðasafnsins, markar því stefnu sem endurskoða skal á fjögurra ára fresti og fer með öll mál er það varða.
Stjórn byggðasafnsins semur og samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun safnsins fyrir ár hvert og fylgist með fjárhag þess og ráðstöfun fjár. Fjármál safnsins eru að öðru leyti á ábyrgð safnstjóra, sem annast um daglegan rekstur þess.
Stjórnin sendir héraðsnefnd til afgreiðslu starfsáætlun og rökstudda beiðni um fjárframlag fyrir komandi starfsár í síðasta lagi 15. nóvember ár hvert. Jafnframt skal stjórnin senda héraðsnefnd ársskýrslu og endurskoðaðan ársreikning liðins árs fyrir 1. mars ár hvert. Arður af starfsemi safnsins skal renna til þess sjálfs.
Héraðsnefnd Árnesinga setur stjórninni erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verkefni og starfshætti stjórnarinnar.
6.gr.
Fastar tekjur byggðasafnsins eru árlegt framlag Héraðsnefndar Árnesinga. Aðrar tekjur eru styrkir sem sótt er um, t. a. m. til Safnasjóðs, sbr. 10. gr. safnalaga nr. 106/2001.
Heimilt er að afla annarra tekna með gjöldum fyrir veitta þjónustu og aðgangi að sýningum safnsins.
Byggðasafnið má eigi taka við gjöfum sem kvaðir fylgja.
7.gr.
Safnstjóri starfar í umboði stjórnar sem forstöðumaður byggðasafnsins og situr stjórnarfundi. Stjórnin ræður safnstjóra til fimm ára í senn og ákveður starfssvið hans. Ráðningarkjör skulu ákvörðuð af Héraðsráði. Hann skal hafa háskólamenntun og staðgóða þekkingu á starfsemi safna.
Safnstjóri skal starfa samkvæmt starfslýsingu sem stjórn safnsins semur og samþykkir.
Safnstjóri ræður annað starfsfólk safnsins að fengnu samþykki stjórnar og í samræmi við samþykkta starfs- og fjárhagsáætlun safnsins.
8.gr.
Alla muni byggðasafnsins skal merkja og skrá og varðveita á svo tryggan hátt sem unnt er. Heimilt er safnstjóra að lána gripi til sýningar með samþykki stjórnar safnsins, en þó eigi til útlanda nema með samþykki menntamálaráðherra.
Hvorki má gefa né selja þá muni sem safnið hefur eignast nema með samþykki stjórnar þess.
9.gr.
Byggðasafnið á Eyrarbakka og aðrar sýningar, sem safnið á eða rekur í samvinnu við aðra aðila, skulu vera opnar almenningi á tilteknum tímum og eigi skemur en þrjá mánuði á ári.
Safnið og starfsemi þess skal kynnt nemendum í grunnskólum í samráði við skóla- og fræðsluyfirvöld, ýmist í safninu sjálfu eða skólum.
10.gr.
Byggðasafni Árnesinga er heimilt að eiga hlut í, taka að sér og annast rekstur og umsjón með söfnum í eigu annarra aðila en Héraðsnefndar Árnesinga. Slík söfn skulu þó falla að hlutverki byggðasafnsins skv. 3. gr.og gera skal sérstaka rekstrarsamninga milli aðila þar að lútandi þar sem fjárhagsgrundvöllur slíks samrekstrar er tryggður.
11.gr.
Stofnskrá þessi er samþykkt af Héraðsnefnd Árnesinga skv. ákvæðum safnalaga nr. 106/2001 og öðlast gildi frá og með staðfestingu safnaráðs, skv. 2. tl. mgr. 10. gr. þeirra laga.
Verði safnið lagt niður skal safnkostur þess renna til Þjóðminjasafns Íslands.
Samþykkt á fundi Héraðsnefndar Árnesinga 5. nóvember 2010.
Staðfest af safnaráði.
Heimilisfang/Address:
Hafnarbrú 3, Eyrarbakka
Sími/Tel:
(+354) 483-1082
E-mail: husid@husid.com




