• English
  • Danish
  • German
  • French

Jólasýning og skáld

Opið verður upp á gátt í Húsinu á Eyrarbakka sunnudaginn 11. desember.  Jólasýning Byggðasafns Árnesinga verður opin frá 13 til 16. Skáld koma í Húsið kl. 16 og lesa úr nýútkomnum bókum sínum.

Jólasýningin hefur verið árviss liður í starfsemi Byggðasafns Árnesinga síðustu áratugi. Gömul jólatré og allskonar jólaskraut setja svip á sýninguna en merkasti gripurinn er spýtujólatré smíðað 1873 og var um langt skeið skreytt lyngi í Hruna í Hreppum og síðar Oddgeirshólum í Flóa.

Bókaupplestur hefst svo kl. 16 í stássstofunni. Fjórir rithöfundar lesa úr verkum sínum. Guðmundur Andri Thorsson les úr verki sínu Valeyrarvalsinn, Vigdís Grímsdóttir les úr nýju bók sinni Trúir þú á töfra?  Rithöfundurinn og listakonan Hildur Hákonardóttir  les úr bókinni Á rauðum sokkum sem er skrifuð af tólf baráttukonum Rauðsokkahreyfingarinnar og Baggalúturinn Garðar Þorsteinn Guðgeirsson færir hlustendum leyndardóma samhverfa og annarra fyrirbrigða. 

Jólakaffi verður á boðstólunum. Ókeypis aðgangur.

gamla tr.JPG