• English
  • Danish
  • German
  • French

Sýning í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka

mMynd.asp.jpeg

Í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka er sýningin Ferjustaðir þar sem sjá má minjar sem tengjast ferjustöðum á Suðurlandi.

Áður en ár voru brúaðar gengdu ferjur mikilvægu hlutverki í samgöngum landsins, ekki síst þar sem þær voru straumþungar. Ferjustaðir voru lögskipaðir á nokkrum stöðum og voru það umferðaæðar gamla tímans með sama hætti og brýr nútímans.

Umferð var mest við upphaf vetrarvertíðar í byrjun febrúar þegar sjómenn voru að halda í verið til Þorlákshafnar, í Selvog og á Suðurnes. 

Yfirleitt munu tveir bátar hafa verið notaðir á ferjustöðum, annarsvegar ferjuskip, sem þurfi amk. fjóra til að róa og tók marga farþega og hinsvegar bátar eða skjöktarar sem tóku 3-5 menn.

Stærsti gripurinn á sýningunni er ferjubátur frá Þjórsárholti í Gnúpverjahreppi. Meðfylgjandi ljósmynd er tekin við Óseyrarnes um 1930.


Skrifstofa/Office