Sumaropnun hefst og sýningar opna á Vori í Árborg
Sumarvertíð safnanna á Eyrarbakka er hafin. Nú er opið alla daga í sumar kl. 11-18 og eftir samkomulagi. Söfnin munu verða þátttakendur í ýmsum menningarhátíðum í sumar og er Vor í Árborg fyrst þeirra. Sumardagskrá safnsins hefur hlotið heitið Gulrót og hefst í Húsinu á Eyrarbakka með opnun sýninga og sumaropnun.
Föstudaginn 14. maí opnar sumarsýning Byggðasafnsins Auður, böl eða blessun? þar sem varpað verður ljósi á ríkidæmi fyrr tíðar. Seinna sama kvöld býður safnið upp á tónleika með hinum ástsælu gleðihljómsveit Spöðunum. Oddný Kristjánsdóttir kemur frá Þjóðbúningastofuunni á sunnudaginn kl 14 og segir frá íslenska faldbúninginum. Eftir það tekur við Vinjettuhátíð skáldsins Ármanns Reynissonar þar sem valinkunnir einstaklingar úr sveitarfélaginu flytja vinjettur ortar af Ármanni auk þess sem tónlist verður í boði. Í Sjóminjasafninu er sýningin Manstu hvar þú varst? Þar sem gefur að líta brot af jarðskjálftasýningunni vinsælu frá síðasta sumri. Gulrætur verða gróðursettar um helgina í gamall kanínugarðinum bak við Húsið og er gestum frjálst að fá fræ og setja niður með okkur. Seinna í sumar má koma aftur til að gæða sér á uppskerunni. Þess má geta að Byggðasafn Árnesinga sótti um styrk til Menningarráðs Suðurlands til að standa undir kostnaði við að fá listamenn og skáld til að heimsækja Húsið. Bar umsóknin góðan árangur en heiti umsóknar til Menningarráðsins var GULRÓT 2010. Meðal annars eru tónleikar Spaðanna kostaðir af Gulrótinni. Frítt er í Húsið og Sjóminjasafnið alla helgina. Í sumar verður opið opið í söfnunum alla daga vikunnar kl. 11-18 og eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu safnins www.husid.com
Heldri borgarar í stássstofu Hússins 15. maí 2010.




