Söfnin fá andlitslyftingu
Fjölbreyttar framkvæmdir eru við Húsið um þessar mundir.
Verið er að tjarga Húsið og mála glugga og má finna tjöruilminn um allt þorp. Hörður Lúðvíksson málarameistari hjá Eðalmálun Suðurlands sér um verkið.
Í garði Hússins vinnur Guðjón Kristinsson hleðslumeistari að viðgerðum á hinum forna sjóvarnargarði sem skemmdist í jarðskjálftanum 2008.
Fyrir norðan Húsið hefur verið tekið til hendinni við útihúsin. Búið er að opna hjallinn og fjósið uppá gátt og sýning á margvíslegum amboðum verið opnuð í hjallinum. Skammt frá útihúsunum gefur að líta forláta brúsapall.
Hópur sjálfboðaliða hefur hafist handa við að mála útihúsin. Verða þau brátt royal-rauð að lit eins og Eggjaskúrinn, gluggar hvítir og þök svört.
Vert er að geta framkvæmda við Sjóminjasafnið á Eyrarbakka síðustu mánuði, sem framkvæmdasvið Árborgar hefur haft umsjón með. Helsti verktaki er Vörðufell ehf á Selfossi. Útveggir byggingarinnar hafa verið einangraðir og klæddir svartri timburklæðningu, skipt var um alla glugga og innandyra hefur verið lagt steinteppi á gólf Sjóminjasafnsins. Var efniviður gólfsins sóttur til Víkur í Mýrdal.
Framkvæmdir þessar hafa engin áhrif á opnunartíma safnanna. Þau eru opin alla daga kl. 11-18.




