• English
  • Danish
  • German
  • French

Smíðadagurinn sló í gegn

vefsa 1.JPGVel tókst til með smíðadag á Eyrarbakka á sunnudaginn. Þrátt fyrir rigningu og dumbunga mætti fjöldi fólks með hamarinn sinn í Sjóminjasafnið og smíðaði úr öllu tiltæku efni.  Þarna komu börnin í fylgd með pabba, mömmu, afa og ömmu  svo það ríkti mikil fjölskyldustemning á svæðinu. Bátasmíðin var allra vinsælust en þeir áköfustu létu sér nægja sverðasmíðina.  Smiðirnir Guðmundur og Gísli Kristjánssynir á Eyrarbakka lögðu þessu verkefni lið með efni og annarri hjálp.  Smíðadeginum var svo vel tekið að öruggt er að hann verði endurtekinn við tækifæri.