• English
  • Danish
  • German
  • French

Skáld í Húsinu og jólasýning

Joladagskra.jpg

Jólasýning Hússins á Eyrarbakka opnar um næstu helgi  og bókaupplestur verður í stássstofunni á sunnudaginn.

Rithöfundarnir Guðrún Guðlaugsdóttir, Vilborg Davíðsdóttir, Guðmundur Brynjólfsson og Jón Karl Helgason lesa upp úr nýjum verkum sínum.  Sá á skjöld hvítan, heitir viðtalsbók Guðrúnar en þar tekur hún á tal Jón Böðvarsson, þjóðþekktan sagnamann sem hefur um árabil frætt landsmenn um fornar hetjur og söguslóðir. Vilborg Davíðsdóttir svíkur ekki aðdáendur sínar og sendir frá sér sögulegu skáldsöguna Auður, þar sem aðalhetjan er landnámskonan Auður Djúpauga. Hér er þroskasaga hennar sögð um leið og dregin er upp mynd af þeim róstusömu tímum þegar norrænir menn lögðu undir sig eyjarnar við Skotland og herjuðu í Vesturhafi.  Guðmundur Brynjólfsson er athyglisverður höfundur sem  fékk íslensku barnabókaverðlaunin fyrir sína fyrstu bók unglingasöguna Þvílík vika. Dagskráin endar á lestri Jón Karls úr verkinu Mynd af Ragnari í Smára. Ragnar í Smára var goðsögn í lifanda lífi; hreppstjórasonur úr Mundakoti á Eyrarbakka sem gerðist iðnrekandi, bókaútgefandi, málverkasafnari og lífið og sálin í íslensku tónlistarlífi um áratugaskeið.

 

Húsið verður opið fyrir gesti 14-17 á laugadag og sunnudag og má þar líta safn gamalla jólatrjá og annað jólaskraut sem prýddi heimili hér áður fyrr. Upplestur hefst kl. 17 á sunnudag. Aðgangur ókeypis og heitt á könnunni alla helgina.