Safnahelgi á Suðurlandi
Fjölbreytt dagskrá er í boði hjá Húsinu og Sjóminjasafninu á Eyrarbakka á Safnahelgi á Suðurlandi 6.- 8. nóvember. Við byrjum með skuggalegu kvöldi í Húsinu, þar sem gestir skoða herbergin með vasaljósi og hver veit nema einhver sitji þar með prjónana sína. Gestir vinsamlega taki með sér vasaljós!
Á laugardag verður Margré
t Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur, í Húsinu með fyrirlesturinn, Húsið við rætur Heklu. Margrét hefur undanfarin ár stjórnað fornleifauppgreftri á rúst í landi Kots í Rangárvallasýslu og fundið minjar um bólstað frá miðöldum. Margrét býður hlustendum upp á veitingar í lok fyrirlesturs.
Seinna sama dag fræðir Lýður Pálsson safnstjóri gesti um minjasýninguna Ferjustaður í Sjóminjasafninu og síðan verður gengið yfir í Beitningaskúrinn, eina af perlum safnsins. Siggi í Heiðmörk spilar á harmonikku í Sjóminjasafninu.
Á sunnudaginn verður merkiskonan Guðmunda Nielsen í öndvegi og sérstök dagskrá, í tali og tónum, tileinkuð henni. Leiklistarfólk færir nýtt líf í Húsið.
Frítt er inn á alla viðburði safnsins og kaffiveitingar í boði á laugardag og sunnudag.
Húsið
Föstudagur 6. nóv. kl. 18-21.30
Vasaljósaheimsókn. Húsið verður myrkrað og gestir skoða safnið með vasaljósi. Gestir eru beðnir um að mæta með sitt eigið vasaljós.
Laugardagur 7. nóv. kl.14
Húsið við rætur Heklu. Fyrirlestur Margrétar Hallmundsdóttur, fornleifafræðings, um fornleifarannsókn á rúst í landi Kots í Rangárvallasýslu.
Margrét býður upp á kaffiveitingar í lok fyrirlesturs.
Sunnudagur 8. nóv. kl.14
Hver var Guðmunda Nielsen? Lýður Pálssson, safnstjóri, fræðir gesti um þessa merku konu. Nýsaumaður búningur Hússins í anda Guðmundu verður til sýnis og sagt verður frá samtíma hennar.
Söngflokkur Eyrarbakka undir stjórn Örlygs Benediktssonar flytur nokkrar perlur.
Kúmenkaffi og bollur í boði Byggðasafns Árnesinga.
Sjóminjasafnið
Laugardagur 7. nóv. kl. 16
Lýður Pálsson, safnstjóri, segir frá sýningunni Ferjustaðir. Að því loknu verður gengið frá Sjóminjasafninu yfir í Beitningaskúrinn við Óðinshús og hann skoðaður í krók og kring. Siggi í Heiðmörk mætir með nikkuna á Sjóminjasafnið.
Það eru Samtök safna á Suðurlandi og Matarkista Suðurlands sem standa að Safnahelgi á Suðurlandi með styrk frá Menningarráði Suðurlands. Sjá má dagskrána alla á www.sofnasudurlandi.is




