• English
  • Danish
  • German
  • French

Líf og fjör á Jónsmessuhátíðinni á Eyrarbakka

jonsmessan.JPGJónsmessuhátíðin á Eyrarbakka heppnaðist með ágætum.  Byggðasafn Árnesinga var áberandi þátttakandi í hátíðinni og bauð upp á uppákomur í og við Húsið á Eyrarbakka. 

 

Meðal þess sem safnið bauð uppá var kýrin Hryssa frá Litlu-Sandvík sem fetaði á slóðir kýrinnar Gulrótar sem einnig var ættuð frá Litlu-Sandvík og var hér á Bakkanum ein í hópi fjölmargra kúa sem Eyrbekkingar áttu um miðja síðustu öld.  Kýrin Gulrót var í eigu Tótu Gests sem allir eldri Eyrbekkingar muna eftir. Kýrin Hryssa ásamt nýfæddum kálfi voru í litlu gerði fyrir framan útihúsin við Húsið og vöktu mikla athygli. Hryssa var um fimmleytið leidd inn í fjósið og mjólkuð þar.  Hjónin Jón Ingi Jónsson og Jóhanna Sveinsdóttir höfðu umsjón  með kúnni ásamt Lindu Ásdísardóttur safnverði. Rjómi var strokkaður og mjólk skilin.   

 

Um miðjan dag mátti sjá í garði Hússins kattliðuga krakka sem æft hafa Parkour-leikfimi og einnig sýndu fimleikatelpur frá Selfossi dansæfingar. 

 

Um kvöldið leiddi Heimir Guðmundsson frá Blátúni almennan söng í stásstofu Hússins á Eyrarbakka. Stofan fylltist löngu áður en dagskráin hófst og var sungið hástöfum í rúman klukkutíma áður en gengið var að Jónsmessubálinu við höfnina.