Líf og fjör á Jónsmessuhátíðinni á Eyrarbakka
Jónsmessuhátíðin á Eyrarbakka heppnaðist með ágætum. Byggðasafn Árnesinga var áberandi þátttakandi í hátíðinni og bauð upp á uppákomur í og við Húsið á Eyrarbakka.
Meðal þess sem safnið bauð uppá var kýrin Hryssa frá Litlu-Sandvík sem fetaði á slóðir kýrinnar Gulrótar sem einnig var ættuð frá Litlu-Sandvík og var hér á Bakkanum ein í hópi fjölmargra kúa sem Eyrbekkingar áttu um miðja síðustu öld. Kýrin Gulrót var í eigu Tótu Gests sem allir eldri Eyrbekkingar muna eftir. Kýrin Hryssa ásamt nýfæddum kálfi voru í litlu gerði fyrir framan útihúsin við Húsið og vöktu mikla athygli. Hryssa var um fimmleytið leidd inn í fjósið og mjólkuð þar. Hjónin Jón Ingi Jónsson og Jóhanna Sveinsdóttir höfðu umsjón með kúnni ásamt Lindu Ásdísardóttur safnverði. Rjómi var strokkaður og mjólk skilin.
Um miðjan dag mátti sjá í garði Hússins kattliðuga krakka sem æft hafa Parkour-leikfimi og einnig sýndu fimleikatelpur frá Selfossi dansæfingar.
Um kvöldið leiddi Heimir Guðmundsson frá Blátúni almennan söng í stásstofu Hússins á Eyrarbakka. Stofan fylltist löngu áður en dagskráin hófst og var sungið hástöfum í rúman klukkutíma áður en gengið var að Jónsmessubálinu við höfnina.




