• English
  • Danish
  • German
  • French

Kynning á þjóðbúningum og Vinjettuhátíð í Húsinu

armann_reynisson.jpgÍ dag sunnudaginn 16. maí verður kynning á þjóðbúningum og Vinjettuhátíð í Húsinu á Eyrarbakka.  Dagskrárliðir þessir eru hluti af menningarhátíðinni Vor í Árborg.

Kl 14 verður kynning á íslenska þjóðbúningnum.  Oddný Kristjánsdóttir kemur frá Þjóðbúningastofunni og segir frá íslenska faldbúninginum. 

Kl 16-18 verður Vinjettuhátíð í stássstofu Hússins undir stjórn Ármanns Reynissonar vinjettuskálds.

Dagskrá:

1)      Lýður Pálsson safnstjóri flytur ávarp

2)      Örlygur Benediktsson tónskáld leikur á píanó

3)      Upplestur: Ármann Reynisson vinjettuhöfundur, Auðbjörg Guðmundsdóttir fyrv. húsfreyja í Húsinu, Sigurgeir H. Friðþjófsson leikari, Þórdís Eygló Sigurðardóttir forstöðumaður.

4)      Kaffiveitingar að hætti Hússins

5)      Ingibjörg Birgisdóttir leikur á flautu

6)      Upplestur: Guðfinna Sveinsdóttir heldriborgari, Anton Guðjónsson Fjölbrautaskólanemi, Þóra Grétarsdóttir leikkona, Karitas Harpa Davíðsdóttir Fjölbrautaskólanemi, séra Úlfar Guðmundsson

     Allir velkomnir – Aðgangur ókeypis

Minnt er á sýninguna Auður böl eða blessun? í borðstofu Hússins og Manstu hvar þú varst? í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka. 

Opið er alla daga kl. 11-18 í sumar.