• English
  • Danish
  • German
  • French

ÍSLENSKI SAFNADAGURINN 2009 Sunnudaginn 12. júlí

postferd.jpgÍslenski safnadagurinn verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 12. júlí nk.  Við söfnin við Suðurströndina verður boðið upp á dagskrá að venju.

Dagskrá safnanna á Eyrarbakka og Stokkseyri 12. júlí 2009:

Húsið á Eyrarbakka - Byggðasafn Árnesinga:     Opið 11-18  ókeypis aðgangur á safnadaginn

Sjóminjasafnið á Eyrarbakka:                              Opið 11-18   ókeypis á safnadaginn

Rjómabúið á Baugsstöðum:                                Opið 13-18   aðgangseyrir 300 kr.

Þuríðarbúð á Stokkseyri                                     Opin allan daginn,  alltaf ókeypis

 

 

Íslenski safnadagurinn verður haldinn sunnudaginn 12. júlí. Hugmyndin að baki deginum má rekja til alþjóða safnadags ICOM sem haldinn er 18. maí ár hvert. Vegna íslenskra aðstæðna hefur verið samkomulag um að færa safnadaginn til hér á landi og halda hann annan sunnudag júlímánaðar. Safnaráð heldur utan um safnadaginn og koma íslensk lista- og minjasöfn með fjölbreytilegum hætti að safnadeginum þar sem tilgangurinn er að vekja athygli á afar fjölbreytilegri starfsemi íslenskra safna.

 

Dagskrá

 Kl.

11-18:  Húsið á Eyrarbakka – Byggðasafn Árnesinga:  Grunnsýning opin, ný náttúrusýning opnar í Eggjaskúrnum, í borðstofu  og víðar um Húsið sérsýningin “Hvar varst þú? – Stóri skjálftinn”.  Ókeypis aðgangur á safnadaginn.

 

11-18:  Sjóminjasafnið á Eyrarbakka:  Grunnsýning opin, sérsýningin Ferjustaðir í forsal safnsins.  Ókeypis aðgangur á safnadaginn.

 

13-18: Rjómabúið á Baugsstöðum, tók til starfa 1905, safn frá 1974,  vélar búsins eru gangsettar fyrir gesti. Leiðsögn.  Aðgangseyrir 300 kr.

 

Þuríðarbúð á Stokkseyri er opin allan daginn. Hlaðin árið 1949 af tilstuðlan Stokkseyringafélagsins í Reykjavík til minningar um horfna sjávarhætti og formanninn Þuríði Einarsdóttur (1777-1863).  Alltaf ókeypis.

 

14: Sjóminjasafnið á Eyrarbakka: Söguganga um Bakkann undir leiðsögn Magnúsar Karels Hannessonar. Lagt af stað frá Sjóminjasafninu og stendur gangan í uþb. klukkustund.

 

21:  Húsið á Eyrarbakka:  Tónleikar í stássstofunni. Shuann Chai á píanó og Svanur Vilbergsson á gítar. Shuann og Svanur munu flytja einleiks- og tvíleiksverk fyrir píanó og gítar.  Efnisskrain mun meðal annars innihalda  "Tilbrigði við stef eftir Mozart" eftir F. Carulli, "Sonatina" eftir M. Giuliani og "Variations Serieuses" eftir F. Mendelssohn fyrir píano.