• English
  • Danish
  • German
  • French

Íslenski safnadagurinn 11. júlí 2010

Íslenski safnadagurinn á Eyrarbakka

Íslenski safnadagurinn er haldinn hátíðlegur á sunnudaginn. Söfnin á Eyrarbakka og Stokkseyri  taka vel á móti gestum -  sem og önnur íslensk söfn af öllu tagi.

Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka opnar nýja sýningu í hjallinum, einu af útihúsum Hússins. Í hjallinum var þurrkaður fiskur áður fyrr. Í Húsinu mun Aer-tríóið spila íslensk þjóðlög eftir sunnlensk tónskáld  en sveitina skipa Margrét Stefánsdóttir sópransöngkona, Jóhann I. Stefánsson trompetleikari og Hilmar Örn Agnarsson orgelleikari. Tónleikarnir hefjast kl 16.00 og ef veður leyfir verða þeir utandyra. Aer trioid.jpg

Við Sjóminjasafnið verður gamalt tundurdufl til sýnis en duflið var í marga áratugi olíutankur við húsið Mörk á Eyrarbakka.  Magnús Karel Hannesson mun leiða sögugöngu um Eyrarbakka og verður lagt af stað frá Sjóminjasafninu kl. 14.00.

Frítt er í söfnin á Eyrarbakka og nú er gott tækifæri til að skoða sýningarnar Auður böl eða blessun? í Húsinu og Manstu hvar þú varst? í Sjóminjasafninu.

Þuríðarbúð á Stokkseyri er opin að vanda en sjóbúðin er til minningar um horfna sjávarhætti og merka sjókonu.

Í Rjómabúinu á Baugsstöðum verða vélar gangsettar fyrir gesti.

Sjá má nánar um íslenska safnadaginn á síðunni www.safnarad.is.