• English
  • Danish
  • German
  • French

Skýrsla um Farskóla FISOS er komin á vefinn

Skýrsla um Farskóla íslenskra safna og safnamanna sem haldinn var í september 2009 á Suðurlandi hefur verið gefin út.  Slóðin er http://husid.com/farskoli-2009/

 

Yfirskrift skólans að þessu sinni var Söfn á tímum breytinga – 20 ára afmæli Farskóla íslenskra safnamanna.

 

Hófst farskólinn á Eyrarbakka miðvikudaginn 16. september og lauk tveimur dögum síðar á Skógum undir Eyjafjöllum. Aðalaðsetur farskólans var Hótel Hvolsvöllur. Félag íslenskra safna og safnamanna hélt jafnframt árshátíð sína.  Farskólastjóri var Lýður Pálsson safnstjóri Byggðasafns Árnesinga. Yfir 100 þátttakendur af öllu landinu sátu farskólann. farskolanemar.JPG