Farskóli FÍSOS 2009
Skýrsla um Farskóla íslenskra safna og safnamanna sem haldinn var í september 2009 á Suðurlandi hefur verið gefin út. Slóðin er http://husid.com/farskoli-2009/ Þar er að finna auk skýrslunnar sjálfrar margvíslegt ítarfefni eins og fyrirlestra, niðurstöður vinnuhópa og skrá yfir þátttakendur.
Yfirskrift skólans að þessu sinni var Söfn á tímum breytinga – 20 ára afmæli Farskóla íslenskra safnamanna. Farskólastjóri að þessu sinni var Lýður Pálsson safnstjóri Byggðasafns Árnesinga.




