• English
  • Danish
  • German
  • French

Í upphafi árs 2010

Starfsfólk Byggðasafns Árnesinga sendir bestu óskir um farsæld á nýbyrjuðu ári – með þökkum fyrir samskipti undanfarinna ára. Í upphafi árs er við hæfi að líta yfir liðið ár og horfa fram á við. portett Hsi small.JPG

 

Um 2009

Starfið var með hefðbundnum hætti á árinu 2009. Enn er unnið að úrvinnslu mála er tengjast jarðskjálftanum yfir Suðurland 29. maí 2008 og varð firnasterkur á Eyrarbakka. Í skjálftanum skemmdust safnhús, sýningakerfi og safnmunir. Enn er unnið að lagfæringum eftir skjálftann og líklegt að því ferli ljúki ekki fyrr en árið 2012.

Sýningahald safnanna var með hefðbundnu móti. Í borðstofu Hússins var um páskana myndlistarsýningin Orð og vængir. Sumarsýningin Hvar varstu? – stóri skjálftinn var opnuð á menningarhátíðinni Vor í Árborg og í tengslum við Vor í Árborg og Listahátíð í Reykjavík voru í stássstofunni haldnir tvennir tónleikar, annarsvegar með Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara og Katie Elizabeth Buckley hörpuleikara annarsvegar og hinsvegar mónó-óperan Miðillinn í flutningi Ásgerðar Júníusdóttur söngkonu og í þýðingu Sjóns. Í forsal Sjóminjasafnsins var minjasýningin Ferjustaður opnuð í sumarbyrjun. Boðið var upp á skólasýningu á þorra og jólasýningu á aðventu. Ýmsir viðburðir voru innan veggja safnanna eins og fyrirlestrar, bókmenntakynningar og tónleikar. Söfnin voru virkir þátttakendur í menningarlífi Eyrarbakka, Árborgar og Suðurlands. Safnstjóri er formaður Samtaka sunnlenskra safna sem hafa það að markmiði að efla og kynna sunnlenskt safnastarf. Safnstjóri var farskólastjóri á Farskóla FÍSOS í september.

Unnið er að skráningu, forvörslu og rannsóknum á safnkosti. Einnig fer mikill tími í allskonar áætlana- og skýrslugerð, markaðssetningu og þróun á sýningahaldi. Safnið er þátttakandi í Sarpi  - sem er sameiginlegur gagnagrunnur flestra minjasafna landsins - og er megnið af safnkosti safnanna á Eyrarbakka skráður þar. Einnig tekur safnið þátt í verkefnavinnu á vegum Þjóðminjasafns Íslands um samtímavörslu.

Fornleifadeild safnsins stóð að uppgreftri við Heklurætur og lauk þátttöku í evrópsku samstarfsverkefni „Unlocking hidden heritage“. Starfsemi deildarinnar var hætt í árslok sökum skorts á verkefnum er heyra undir starfssvið Byggðasafns Árnesinga skv. stofnskrá. Þar munaði mestu um að Sveitarfélagið Árborg gerði hlé á fornleifaskráningu sinni.

Við safnið voru þrír háskólamenntaðir starfsmenn í fullri stöðu, Lýður Pálsson safnstjóri, Linda Ásdísardóttir safnvörður og Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur. Söfnin voru opnuð 15. maí og opin til 15. september kl. 11-18 alla daga vikunnar. Jafnframt tekið á móti fjölmörgum hópum og skólum sem gátu pantað tíma eftir samkomulagi allt árið. Aðsókn var með ágætum en í kringum 6000 gestir komu á árinu sem er yfir meðallagi síðustu ára.

 

Erfðaskrá Helga Ívarssonar

Á fundi Héraðsnefndar Árnesinga 12. maí 2009 komu Björn Pálsson héraðsskjalavörður og Lýður Pálsson safnstjóri inn á fundinn og greindu frá arfi sem söfnunum hefði borist. Í fundargerð segir:

 

1.      Kynningar fulltrúa Byggðasafnsins og Héraðsskjalasafnsins á arfi sem söfnunum hefur hlotnast.

Björn Pálsson og Lýður Pálsson sögðu frá því að Helgi Ívarsson í Hólum hefði arfleitt ofangreind tvö söfn að öllum eigum sínum. Er þarna um mikla fjármuni að ræða, íbúð, bifreið, alla lausamuni, bókasafn, ljósmyndir, frímerkjasafn og myntsafn. Ekki er enn ljóst hvert heildarverðmæti gjafarinnar er, en telja þeir að í fljótu bragði komi a.m.k. 25 milljónir í hlut hvors safns. Voru fundarmenn allir á einu máli um mikinn höfðingsskap gefanda og er eindreginn vilji héraðsnefndar, forstöðumanna og stjórna safnanna að uppfylla öll eðlileg skilyrði sem erfðaskráin felur í sér. Gengið verði frá öllu málinu á faglegan, lögformlegan hátt; frágangur á erfðafjárskýrslu verði unninn af lögmanni, ekki síst þar sem þetta er svo stór gjöf, óvenjuleg og vandmeðfarin. Var samþykkt samhljóða að fela héraðsráði að hlutast til um frágang og úrvinnslu á þessu stóra verkefni.

Eftirfarandi tillaga að bókun lögð fram:Helgi small.jpg

„Helgi Ívarsson, Hólum, Stokkseyrarhreppi, hefur arfleitt Héraðsskjalasafn Árnesinga og Byggðasafn Árnesinga að öllum eigum sínum með þeim frávikum sem tilgreind eru í erfðaskrá.

Héraðsnefnd metur mikils þann hlýhug og stórmennsku sem Helgi sýndi með þessum rausnarlega arfi. Það er einlægur vilji og metnaður Héraðsnefndar Árnesinga að minningu Helga sé sýndur sá sómi sem tilhlýðilegt er“.

Samþykkt samhljóða.

  Heimild: http://heradsnefndarnesinga.is/Fundargerd49.htm

 

Starfsemi 2010

Í upphafi ársins hafa starfsmenn unnið að margvíslegum skráningarverkefnum og sömuleiðis að því að skrá innbú Helga Ívarssonar frá Hólum en hluti af innbúinu mun verða skráð í aðfangaskrá Byggðasafns Árnesinga.

Um þessar mundir er einnig verið að ljúka söfnun á skjálftasögum. Framundan er skipulagning sumarstarfs, einkum uppfærsla á grunnsýningu og uppsetning sumarsýninga.

Aðgangseyrir 2010 verður 700 kr. en veittur er afsláttur fyrir hópa og aldraða. Börn 12 ára og yngri greiða ekki aðgang.

 

Viðgerð á Sjóminjasafninu

Um þessar mundir er unnið að viðgerðum á forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka en gólf þess skemmdist í jarðskjálftunum 2008. Af þeim sökum verður ekki hægt að hleypa hópum inn í Sjóminjasafnið fyrr en eftir páska.