Hvar var Þorsteinn?
Safnahelgi á Suöurlandi er gengin í garð en hún er 4.-6. nóvember.
Safnahelgin í Byggðasafni Árnesinga verður tileinkuð ljósmyndum úr Árnessýslu. Í Húsinu á Eyrarbakka verður ljósmyndasafn Þorsteins Jósepssonar, ljósmyndara, til sýnis og greiningar. Gestir eru hvattir til að koma og hjálpa okkur að þekkja staðinn og fólkið á ljósmyndunum. Þorsteinn (1907-1967) var mikilsvirtur landslagsljósmyndari sem ferðaðist um allt Ísland í ljósmyndaleiðöngrum sínum. Eftir hann liggur mikið af þjóðlífmyndum. Alls verða um 500-600 myndir á sýningunni frá árunum 1940-65. Sýningin er haldin í samstarfi við Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni.
Ýmislegt annað verður á döfinni. Á laugardaginn kl. 14 verður þjóðlagahljómsveitin Korka með tónleika í Húsinu og á sunnudaginn verður dagskrá tileinkuð ljósmyndum. Flutt verður erindi um Þorstein Jósepsson og einnig mun Gunnar Marel Hinriksson kynna nýútkomna ljósmyndabók sína Selfoss. Blokkflautukvartett Rangæinga spilar kaffihúsatónlist milli erinda.
Opið er kl. 13-18 frá föstudegi til sunnudags. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.




