Húsfyllir á Spaðatónleikum
Frábær stemming var í Húsinu á Eyrarbakka föstudagskvöldið 14. maí þegar hinir ástsælu Spaðar stigu á stokk og héldu tónleika í hinni svonefndri Bláustofu. Húsfyllir var á tónleikunum. Milli fjögurra sýningapúlta um sögu Hússins í Bláu stofunni stigu þeir sexmenningarnir á fjalir og fluttu úrval af þeim fjölmörgu lögum sem þeir hafa gefið út í gegnum tíðina. Með þessum tónleikum urðu þeir í raun sjálfir hluti af 245 ára sögu Hússins á Eyrarbakka en ekki er vitað til að dægurlagahljómsveit hafi áður komið fram í þessu aldna kaupmannssetri. Almenn ánægja var með tónleikana og mátti sjá einstaka gesti stíga sporin í borðstofunni við hliðina. Hljómsveitin var klöppuð upp og spilaði hálftíma lengur en ætlað var.
Hljómsveitina Spaða skipa þeir Guðmundur Pálsson, Guðmundur Ingólfsson, Sigurður Valgeirsson, Guðmundur Andri Thorsson, Aðalsteinn Arason og Magnús Haraldsson. Einnig er í hljómsveitinni Gunnar Helgi Kristinsson sem fjarstaddur var vegna starfsanna.
Tónleikarnir eru hluti af viðburðadagatali Byggðasafns Árnesinga 2010 sem hlotið hefur heitið Gulrót og er styrkt af Menningarráði Suðurlands.




