• English
  • Danish
  • German
  • French

Heimildarmyndin Húsið á Eyrarbakka tilvalin í jólapakkann

Nú fer að líða að jólum og ýmsir farnir huga gjöfum til vina og ættingja nær og fjær. Í sumar gaf Byggðasafn Árnesinga út á DVD-diski leikna heimildarmynd um Húsið  á Eyrarbakka sem tilvalin er í jólapakkann. 110803.jpg

Í heimildarmyndinni er fjallað um Húsið, íbúa þess og þá margvíslegu menningarstrauma sem þaðan bárust. Einnig er fjallað um verslunarhætti og brugðið upp svipmyndum af Húsinu í dag. Handrit, stjórn upptöku og klipping var í höndum Andrésar Indriðasonar, um  kvikmyndatöku, hljóð, lýsingu og klippingu sá Jóhannes Jónsson. Frumsamin tónlist fyrir myndina samdi Elín Gunnlaugsdóttir tónskáld. Leikendur í myndinni eru Maríanna Clara Lúthersdóttir, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, Erla Kristín Guðmundsdóttir, Dagur Fannar Magnússon,  Gunnar Páll Júlíusson og Elín Gunnlaugsdóttir.

  

Hægt er að kaupa myndina á vægu verði á skrifstofu Byggðasafns Árnesinga við Hafnarbrú á Eyrarbakka (sími 483 1082), í Húsinu á Eyrarbakka, Verslun Guðlaugs Pálssonar á Eyrarbakka og Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi.