Góð aðsókn á Safnahelgi
Fjölsótt var á viðburði safnanna á Eyrarbakka um safnahelgina. Byggðasafnið bauð upp á vasaljósakvöld í Húsinu á föstudagskvöldið. Í myrkrinu leyndist fólk úr fortíðinni og þó að mörgum gestum yrði hverft við kunnu allir að meta skuggalegt andrúmsloftið. Leikhópur frá félagsmiðstöðinni Zelsíus á Selfossi sá um þann leik í Húsinu.
Á laugardaginn flutti Margrét Hallmundsdóttir fornleifafræðingur fyrirlesturinn, Húsið við rætur Heklu, fyrir fullum sal gesta. Hún sagði frá fornleifauppgreftri á landi Kots í Rangárvallasýslu. Margrét hefur stjórnað því verki í þrjú ár og
þar hafa fundist minjar um bústað frá því um landnámsöld. Líflegar umræður sköpuðust í kjölfarið.
Síðar þennan daginn var minjasýningin Ferjustaður í Sjóminjasafninu kynnt og úr safninu gengið yfir í Beitningaskúrinn svonefnda sem stendur rétt vestan við Óðinshúsið.
Helginni lauk á sunnudag með sérstakri dagskrá helgaðri Guðmundu Nielsen, sem er fædd í Húsinu á Eyrarbakka. Lýður Pálsson, safnstjóri flutti fróðlegt erindi um líf hennar og störf og kynnti einnig nýjan búning Hússins sem er saumaður með Guðmundi í huga. Tónlist var fléttað inn í dagskránna og Söngflokkur Eyrarbakka sló algjörlega í gegn með þjóðlegum frumlegum flutningi.




