• English
  • Danish
  • German
  • French

Gleðilega páska

Hsi.JPGUm páskana verður hægt að komast inn í Húsið á Eyrarbakka eftir samkomulagi við starfsmenn. Á skírdag og föstudaginn langa geta hópar fengið að skoða Húsið eftir samkomulagi við Lindu Ásdísardóttur safnvörð í síma 820 0620  en á laugardaginn, páskadag og annan í páskum eftir samkomulagi við Lýð Pálsson safnstjóra í síma 891 7766.

Sjóminjasafnið er lokað um þessar mundir vegna viðgerða.  

Söfnin opna upp á gátt þann 15. maí næstkomandi en fram að því er að sjálfsögðu hægt að skoða þau eftir samkomulagi við starfsmenn – á öllum tímum.