Gestum gefnar gulrætur og söl um helgina
Húsið og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka gera klárt fyrir haustið og núna rennur upp síðasta sýningarhelgi sumarsins. Sumarsýning Hússins Auður-böl eða blessun er tileinkuð ríkidæmi 19. aldar og þar gefur að líta marga gripi sem tengjast auðugum mönnum Árnessýslu . Í þá daga var fiskur gjaldmiðill og hey var gulls ígildi. Í Sjóminjasafninu er hægt að sjá sýninguna Manstu hvar þú varst? sem er sýnir brot af myndbrotum og sögur frá jarðskjálftanum árið 2008.
Í tilefni árstíðarskipta verður safnagestum boðið uppá söl í Sjóminjasafninu og ferskar gulrætur í Húsinu. Í sumar var hresst uppá gamla kanínugarðinn norðan við Húsið og ræktaðar þar gulrætur sem spruttu með eindæmum vel í veðurblíðunni.
Almennur opnunartími safnanna er frá 11-18 fram til 15. september en eftir þann tíma eru söfnin opnuð fyrir minni og stærri hópa eftir samkomulagi. Símar 483 1504 og 483 1082.




