Fjalla-Eyvindur í Húsinu á Eyrarbakka
Fimmtudaginn 19. nóvember nk. kl. 20:30 í Húsinu á Eyrarbakka verður haldinn annar fræðslufundur Sögufélags Árnesinga nú í vetur, í samstarfi við Byggðasafn Árnesinga. Þar mun Björk Ingimundardóttir skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands halda erindi um Fjalla-Eyvind en hún hefur rannsakað áður ókönnuð skjöl um sögu Eyvindar Jónssonar (1714-1783) frá Hlíð í Hrunamannahreppi og konu hans Höllu.
Aðgangseyrir er kr. 500 og eru kaffiveitingar innifaldar. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Fréttatilkynning frá Sögufélagi Árnesinga og Byggðasafni Árnesinga




