Farskóli íslenskra safnamanna 2009 - skýrsla komin út
Skýrsla um Farskóla íslenskra safna og safnamanna 2009er komin út á vef Byggðasafns Árnesinga og er slóðin http://husid.com/farskoli-2009/
Farskólinn var haldinn í september sl. og bar yfirskriftina Söfn á tímum breytinga - 20 ára afmæli farskólans. Farskólinn hófst á Eyrarbakka 16. september og hafði aðalaðsetur á Hvolsvelli. Skólanum var slitið í Skógasafni föstudaginn 18. sept. Farskólanemendur voru 110 talsins af öllu landinu, flestir starfsmenn minjasafna en einnig frá listasöfnum og náttúrugripasöfnum. Fimm fyrirlestrar voru fluttir og í kjölfar þeirra tóku umræðuhópar til starfa. Þess utan skoðaði farskólinn söfn á Suðurlandi og jafnframt hélt Félag íslenskra safna og safnamanna sína árlegu árshátíð á farskólanum. Farskólastjóri var Lýður Pálsson safnstjóri Byggðasafns Árnesinga.




