• English
  • Danish
  • German
  • French

Ekki snerta jörðina!

boskort-Eyrarbakki 2.jpg

Ekki snerta jörðina! er sýning fyrir börn á öllum aldri sem opnar í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka 11. ágúst kl. 17.  Sýningin er samtímasýning og þar má sjá brot af leikjum barna í dag.  Hún er  öll á forsendum barna. Hægt er að snerta, skoða og leika. 

Á sýningunni gefur að líta afrakstur rannsóknar sem Byggðasafn  Árnesinga tók þátt í ásamt sjö öðrum söfnum á landsvísu, Þjóðminjasafni Íslands, Árbæjarsafni, Lækningjaminjasafni Íslands, Byggðasafni Reykjanesbæjar, Minjasafninu á Akureyri, Minjasafni Egilstaða og Þjóðfræðistofu. Rannsóknin miðaðist við að rannsaka leiki 10 ára skólabarna þar sem börnin sjálf voru virkir þátttakendur. Á Suðurlandi  voru það börn í Flóaskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri sem lögðu verkefninu lið. 

Niðurstöður rannsóknarinnar  voru margþættar en sýndi glöggt að börn er mjög frjó í leik og eru t.d. alls ekki hætt að leika sér úti. Fótbolti reyndist allra vinsælasti leikur barna um allt land og þó ekki sé hægt að sparka bolta á sýningunni er  hægt að spila fótboltaspil. Fjölskyldufólk er hvatt til að koma  á þessa sýningu og minnt er á að ókeypis er fyrir skólahópa og börn í fylgd með foreldrum. Sýningin stendur fram í október.