• English
  • Danish
  • German
  • French

Byggðasafni Árnesinga gefnar teikningar

Byggðasafn Árnesinga fékk nýverið afhentar teikningar eftir Sigríði Tómasdóttur frá Brattholti í Biskupstungum. Ættingjar Sigríðar gáfu safninu teikningarnar til varðveislu en fyrir á safnið eina teikningu eftir þessa merku konu. Sigríður (1871-1957) var þekkt  fyrir náttúruvernd og barðist gegn virkjun í Hvítá og Gullfossi. Meðfylgjandi ljósmynd er tekin í Húsinu á Eyrarbakka við afhendingu teikninganna, frá vinstri Guðni Karlsson frá Gýgjarhólskoti, Lýður Pálsson safnstjóri, Inga Kristjánsdóttir og Kristófer A. Tómasson. Sigríður var ömmusystir Ingu og Kristófers.

stomasd.jpg