Byggða- og húsakönnun á Stokkseyri
Nýkomið er út ritið Byggða- og húsakönnun á Stokkseyri. Í húsakönnuninni voru rannsökuð 58 hús í og við Stokkseyri og gert mat yfir ástand og varðveislugildi þeirra. Í ritinu eru lagðar fram tillögur að friðun einstakra húsa og hverfisvernd yfir hluta þorpsins.
Í samantektarkafla ritsins segir: „Helstu niðurstöður byggða- og húsakönnunar á Stokkseyri eru þær að þorpið býr yfir sérstökum gæðum sem felast í einstökum húsum og húsaþyrpingum og menningasögulegu gildi þeirra bæði hvað varðar byggingalistarsögu og atvinnusögu byggðarinnar. Samspil húsa, atvinnusögu, þorpsbúa og náttúrulegra aðstæðna er óvíða ennþá til staðar í sama mæli og á Stokkseyri. Þetta á fyrst og fremst við um húsin sem könnunin tók til, þ.e.a.s. hús byggð fyrir árið 1940, þegar húsum var valinn staður eftir þeim aðstæðum sem umhverfið bauð upp á fremur en á lóðum sem dregnar eru upp eftir reglustrikum í skipulagi.“
Ráðgjafi byggða- og húsakönnunarinnar á Stokkseyri og höfundur ritsins er Guðmundur L. Hafsteinsson arkitekt. Húsakönnunin var unnin í tveimur áföngum, fyrst á árunum 1999 og 2000 og svo var aftur tekið við könnunina árið 2010.
Húsafriðunarnefnd ríkisins veitti styrki til könnunarinnar sem unnin er eftir leiðbeiningum hennar. Útgefandi er Sveitarfélagið Árborg í samvinnu við Byggðasafn Árnesinga. Ritið sem er 58 síður að stærð verður dreift á öll heimili á Stokkseyri. Ritið verður til sölu í Ráðhúsi Árborgar og á skrifstofu Byggðasafns Árnesinga við Hafnarbrú á Eyrarbakka. Einnig verður það að finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.arborg.is og á heimasíðu Húsafriðunarnefndar www.husdafridun.is
Meðfylgjandi ljósmynd tók Haraldur Blöndal ljósmyndari af Sönduhverfinu á Stokkseyri árið 1926. Eigandi myndar Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni.




