Aldamótahátíð á Eyrarbakka 14.-15. ágúst
Aldamótahátíðin á Eyrarbakka nálgast en hún verður næstu helgi. Dagskrá Aldamótahátíðarinnar á Eyrarbakka liggur fyrir og er fjölbreytt dagskrá í boði fyrir alla aldurshópa. Boðið er upp á margþætta dagskrá og uppákomur víða um höfuðstaðinn forna. Og ekki spillir veðurspáin en spáð er blíðuveðri og mikilli sól – enda alltaf sól á Bakkanum.
Húsið og Sjóminjasafnið verða þátttakendur og bjóða upp á þjóðlega aldamótatónlist, heldri borgara í aldamótastíl spila lomber og whist og aldamótahænur frá Húsatóftum á Skeiðum hafa komið sér fyrir í nýmáluðu fjósinu. Dagskrána má sjá hér að neðan og einnig hér.




