Aldamótahátíð á Eyrarbakka
|
Eyrarbakki um 1900:
Eyrbekkingar boða til Aldamótahátíðar helgina 15. og 16. ágúst n.k.
Laugardagur 15. ágúst.
08.30 Flöggun
Alþjóðleg móttökunefnd dreifir nánari dagskrá og býður fólk velkomið
09.30 Vesturbúðin opnar
10.00 Gallerí Regína opnar verður með óvæntar uppákomur og pönnukökur á pallinum allan daginn.
11.30 Rauða Húsið opnar . www.raudahusid.is
11.00 Byggðasafn Árnesinga í Húsinu og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka opna. Allir sem eru þjóðlega klæddir fá frítt inn á söfnin um helgina. Jafnvel sjóhatturinn dugar! Sýningin Hvar varst þú? Stóri skjálftinn í Húsinu. Ferjustaðir í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka.
13.00 Gónhóll opnar markaðstorgið , grænmeti, bakkelsi, handverks- og nytjamarkaður. Latti sýnir olíu og vatnslitamyndir. Kaffihúsið hennar ömmu ilmar af heitu súkkulaði og pönnsum. www.gonholl.is
13.30 Skrúðganga fyrir menn og dýr frá Barnaskóla Eyrarbakka um þorpið og endar í Kjötsúpuhátíð við Húsið, Byggðasafn Árnesinga.
Fornbílar aka inn í þorpið og sameinast okkur í kjötsúpuhátíðinni.
14.00 Setning
14.30 Barnagaman á Garðstúni. Gamlir íslenskir leikir rifjaðir upp í umsjá valinkunnra kvenna af Bakkanum.
Kjörís býður uppá ís
Hörður Jóhannsson skipstjóri bætir net og hnýtir hnúta á Sjóminjasafninu. Munið að það er frítt fyrir ykkur með sjóhattinn!
Hestamenn af Bakkanum bjóða börnum á hestbak
Söluborð og markaðstorg um allt þorp.
Erlendir kaupmenn reyna fyrir sér í viðskiptum við heimamenn.
Thomsensbíllinn var fyrsti bíllinn sem kom á Eyrarbakka 1904. Sverrir Andrésson hefur smíðað eftirgerð af honum og býður fólki í smáswing um þorpið. Fornbílaklúbbur Íslands býður einnig lekkerum dömum og hattklæddum herrum á rúntinn.
15.00 Kappsláttur á grasbletti vestan við íshúsið. Keppendur skrái sig í síma 863 1182 og mæti minnst 30 mínútum fyrr með amboð.
16.00- 18.00 Rakubrennsla og holubrennsla bak við Óðinshús. I
16.00- 18.00 Má bjóða yður í bæinn?
Dvalarheimilið Sólvellir með opið hús og handverk.
13:00/ 15.00/17.00 Hús og menning
18.00 Tónleikar í Gónhól, Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Vignir Stefánsson
21:30 - 23:30 Hlöðuball í Gónhól. Hinir einstöku Bjarnabófar sjá um gleðskapinn. Þjóðlegur klæðnaður og Bakköl í pokann.
08.30 Þorpsbúar draga fána að hún.
10.00 Gallerí Regína opnar verður með óvæntar uppákomur og pönnukökur á pallinum allan daginn.
10.00 Vesturbúðin opnar
11.00 Morgunmessa við Slippinn.
11.30 Rauða Húsið opnar . www.raudahusid.is
11.00 Byggðasafn Árnesinga í Húsinu og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka opna. Allir sem eru þjóðlega klæddir fá frítt inn á söfnin um helgina. Jafnvel sjóhatturinn dugar! Sýningin Hvar varst þú? Stóri skjálftinn í Húsinu. Ferjustaðir í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka.
13.00 Gónhóll opnar markaðstorgið , grænmeti, bakkelsi, handverks- og nytjamarkaður. Latti sýnir olíu og vatnslitamyndir. Kaffihúsið hennar ömmu ilmar af heitu súkkulaði og pönnsum. www.gonholl.is
14.00- 18.00 Rakubrennsla og holubrennsla bak við Óðinshús.
Hestamenn af Bakkanum bjóða börnum á hestbak
Fornbílar bjóða hattadömum og herrum á blankskóm á rúntinn.
16.00- 18.00 Má bjóða yður í bæinn? Gestrisnir Eyrbekkingar bjóða til stofu og sýna gamla muni, leikföng og dúkkulísur. Harmonikkan dunar og boðið er uppá danskar eplaskífur, kaffi og lummur. Ketilkaffi og kandís.
Dvalarheimilið Sólvellir með opið hús og handverk
Söluborð og markaðstorg um allt þorp.
15.00-17.00 Hjördís Geirsdóttir söngkona stýrir Rekstrasjón í Gónhól
21.00 Hátíðinni slitið við Slippinn. Árni Johnsen stýrir fjöldasöng .
Tjaldstæði og gisting fyrir alla fjölskylduna á Eyrarbakka, Stokkseyri og Selfossi.
http://www.rein-guesthouse.is/
Sjá nánar á:
Sjá auglýsingu hér:
http://www.eyrarbakki.is/vefsidan/Data/MediaArchive/images/eyrabakki.pdf
|
||
|
|





