Að lokinni vel heppnaðri safnahelgi
Safnahelgi á Suðurlandi var um síðustu helgi. Byggðasafn Árnesinga í Húsinu á Eyrarbakka bauð upp á ljósmyndasýningu og tónleika. Í borðstofu og bláustofu var sýning á ljósmyndum Þorsteins Jósepssonar ljósmyndara í samstarfi við Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni. Gestum gafst kostur á að veita
upplýsingar um efni ljósmyndana og fengust margvíslegar viðbótarupplýsingar sem nýtast munu við skráningu þeirra. Góð aðsókn var en sýninguna má sjá eftir samkomulagi fram yfir næstu helgi.
Á laugardeginum hélt þjóðlagasveitin Korka tónleika í stássstofunni og á
sunnudeginum var ljósmyndatengd dagskrá í stássstofunni með tónlistarlegu ívafi. Linda Ásdísardóttir safnvörður talaði um Þorstein Jósepsson ljósmyndara og Gunnar Marel Hinriksson skjalavörður í Kópavogi las úr nýútkominni bók sinni um æskustöðvarnar sínar Selfoss en á milli erinda spilaði
Blokkflautukvartett Rangæinga íslenska tónlist og 17. aldar barrok sem var vel við hæfi í 17. aldar húsi. (063) Að lokum má hér við bæta að Lýður Pálsson safnstjóri Byggðasafns Árnesinga brá sér upp í Hrepp á laugardeginum til að kynna sér safnarasýningu Upplits á Flúðum. Þar hitti hann m.a. kampakátann Upplitsmanninn og sagnfræðinginn Skúla Sæland með smáflöskusafn sitt.




