• English
  • Danish
  • German
  • French

Safnið

Byggðasafn ÁrnesingaLogo Byggasafn rnesinga small.jpg

Hlutverk Byggðasafns Árnesinga er að safna, skrásetja, varðveita og sýna muni er tengjast sögu Árnessýslu. Safnið er í eigu Héraðsnefndar Árnesinga sem er byggðasamlag átta sveitarfélaga í Árnessýslu. Grunnsýning safnsins hefur verið í Húsinu á Eyrarbakka frá árinu 1995. Það sér um rekstur Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka fyrir Sveitarfélagið Árborg. Byggðasafn Árnesinga er jafnframt þátttakandi í rekstri Rjómabúsins á Baugsstöðum.

 

Húsið á Eyrarbakkahusidb.jpg

Andlit safnsins er Húsið á Eyrarbakka. Húsið á Eyrarbakka sem byggt var árið 1765 fyrir danska einokunarkaupmenn er í hópi elstu bygginga landsins og lengi vel merkt menningarsetur þar sem erlend áhrif gættu á margvíslegan hátt.

Byggðasafn Árnesinga tók við Húsinu árið 1995 að loknum viðamiklum viðgerðum. Í Húsinu er lögð áhersla á að kynna sögu Hússins frá byggingarári til dagsins í dag.

Áfast við Húsið er viðbyggingin Assistentahúsið sem reist var árið 1881. Þar er Byggðasafn Árnesinga með sex ólíkar sýningardeildir þar sem fræðast má um vel valda þætti úr sögu héraðsins.

Aftan við Assistentahúsið er lítil bygging Eggjaskúrinn sem hýsir fugla- og eggjasafn í minningu Peter Nielsens faktors sem réði ríkjum í Húsinu á Eyrarbakka fyrir öld síðan.

 sjominja.jpg

Sjóminjasafnið á Eyrarbakka

Austast á Kaupmannstúninu er Sjóminjasafnið á Eyrarbakka.  Það var stofnað af Sigurði Guðjónssyni skipsstjóra á Litlu-Háeyri einkum í því skyni að bjarga síðasta áraskipinu sem smíðað var á Eyrarbakka frá eyðileggingu. Áraskipið Farsæll er í dag aðalsafngripur Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka en einnig geta gestir fræðst um skipasmiðinn,  mismunandi veiðiaðferðir og margvíslegt annað sem tengdist sjávarútvegi við Suðurströndina fyrr á tímum. Sjá nánar hér.

 


Nýjustu fréttir

22/07/2010

Söfnin fá andlitslyftingu

Fjölbreyttar framvæmdir eru við Húsið um þessar mundir. Verið er að tjarga Húsið og mála glugga og má finna tjöruilminn um allt... Meira

08/07/2010

Íslenski safnadagurinn 11. júlí 2010

Íslenski safnadagurinn er haldinn hátíðlegur á sunnudaginn. Söfnin á Eyrarbakka og Stokkseyri taka vel á móti gestum sem og önn... Meira

Skrifstofa/Office

Heimilisfang/Address:
Hafnarbrú 3, Eyrarbakka

Sími/Tel:
(+354) 483-1082

E-mail: husid@husid.com