• English
  • Danish
  • German
  • French

Góð aðsókn í Húsið og Sjóminjasafnið og alltaf eitthvað nýtt að sjá

 

Góð aðsókn hefur verið að söfnunum á Eyrarbakka í sumar.  Margþættar skýringar eru á því.  Góða veðrið hefur haft sitt að segja, aukin fjöldi erlendra gesta til landsins, vaxandi fjöldi innlendra gesta á kostnað utanlandsferða, athyglisverðar sumarsýningar og nýjar áherslur í markaðsetningu.

Sumarsýningin „Hvar varst þú? – Stóri skjálftinn“ í Húsinu á Eyrarbakka hefur vakið mikla athygli og ýmsum komið á óvart að í Byggðasafni Árnesinga skuli ekki einungis vera til sýnis rokkar og askar úr gamla íslenska bændasamfélaginu. Samtímasöfnun hefur verið vaxandi þáttur í starfsem Byggðasafns Árnesinga og í sumar njóta safngestir Hússins á Eyrarbakka afraksturs verkefnisins Hvar varst þú 29. maí 2008? sem fellst í söfnun reynslusagna frá jarðskjálftanum 29. maí 2008.

Í forsal Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka gefur að líta sýninguna Ferjustaður þar sem ýmsir munir frá ferjustöðum í Árnessýslu eru til sýnis.

Í Eggjaskúrnum norðan Hússins hefur verið sett upp ný vegleg náttúrusýning á íslensku fuglalífi. Hafa í því skyni verið smíðaðir nýir sérsmíðaðir sýningaskápar fyrir uppstoppaða fugla og egg úr íslenskri náttúru.  Safnið fékk góða styrki til þessa verks frá Pokasjóði og Menningarráði Suðurlands. Eggjaskúrinn var fyrir öld síðan aðstaða húsbóndans í Húsinu Peters Nielsens til að varðveita og rannsaka fugla og egg sem hann keypti eða fékk gefins frá sunnlenskum bændum. 

Húsið á Eyrarbakka og Sjóminjasafnið á Eyrarbakka eru opin alla daga kl. 11-18 yfir sumartímann og á öðrum tímum dagsins eftir samkomulagi.  Sími Hússins er 483 1504.