Ítarefni
Dagskrá farskólans
Listasöfn á jaðrinum - erindi Ingu Jónsdóttur 16. sept. 2009.doc
Eiríkur Þorláksson erindi á Farskóla FISOS 18. sept. 2009
Hlutverk safna í almenningsfræðslu á breytingatímum.doc - niðurstöður vinnuhóps
Sarpur og opnun gagnagrunna á vefinn.doc - niðurstöður vinnuhóps
Listasöfn á jaðrinum.doc - niðurstöður vinnuhóps
Hlutverk safna í húsavernd.doc
Niðurstöður vinnuhóps
Farskóli 2009
SÖFN Á TÍMUM BREYTINGA
20 ára afmæli Farskóla íslenskra safnamanna 1989-2009
Farskóli FISOS á Suðurlandi 16.-18. september 2009
Farskóli FÍSOS 2009 - Skýrsla farskólastjórnar
20. Farskóli Félags íslenskra safna og safnamanna var haldinn dagana 16.-18. september 2009 á Suðurlandi með aðalaðsetri á Hvolsvelli.
Yfirskrift skólans að þessu sinni var Söfn á tímum breytinga – 20 ára afmæli Farskóla íslenskra safnamanna.
Í stjórn farskólans sátu:
Lýður Pálsson farskólastjóri, Eyrarbakka,
Ágústa Kristófersdóttir, Reykjavík,
Inga Lára Baldvinsdóttir, Eyrarbakka,
Sverrir Magnússon, Skógum og
Þuríður H. Aradóttir, Hvolsvelli.
Ljósm. Magnús Hlynur Hreiðarsson
Farskólastjórn hélt fimm undirbúningsfundi, fyrstu tvo í Húsinu á Eyrarbakka, þá tvo fundi á Hvolsvelli og síðasti fundurinn var haldinn á Skógum. Á fundunum var dagskrá farskólans mótuð og skipulögð. Þema skólans var valið Söfn á tímum breytinga. Jafnframt var ákveðið að minnast 20 ára afmælis farskólans en sá fyrsti var haldinn árið 1989.
Um 110 manns skráðu sig í Farskólann sem er mjög góð þátttaka. Farskólinn var styrkur af Safnaráði. Árshátíðin var niðurgreidd af FÍSOS en að öðru leyti var skólinn rekinn fyrir skólagjöld þátttakenda. Byggðasafn Árnesinga hélt utan um fjárreiður farskólans.
Miðvikudagur 16. september 2009
Tvær rútur sem farskólinn leigði af ÞÁ bílum á Selfossi lögðu af stað frá Reykjavík með meginþorra farskólanema. Lagt var upp frá Þjóðminjasafni Íslands kl. 10 með viðkomu í Árbæjarsafni. Nokkrir farskólanemar komu á einkabílum og einnig var í för lítil rúta frá Minjasafninu á Akureyri.
Komið var á Eyrarbakka skömmu eftir kl. 11. Farskólasetning fór fram í Húsinu á Eyrarbakka. Linda Ásdísardóttir og Margrét Hrönn Hallmundsdóttir starfsmenn Byggðasafns Árnesinga afhentu ráðstefnugögn. Safnstjóri Byggðasafns Árnesinga og farskólastjórinn Lýður Pálsson setti farskólann með stuttri tölu og bauð nemendum að ganga í veitingastaðinn Rauða-húsið.
Fyrsti fyrirlestur farskólans var fluttur í norðursal Rauða-hússins á Eyrarbakka. Ragnhildur Vigfúsdóttir fyrsti farskólastjórinn fjallaði um upphaf farskólans og gildi símenntunar þá og nú. Einnig voru með innlegg þær Sigrún Ásta Jónsdóttir og Helga Lára Þorsteinsdóttir sem báðar ræddu sína upplifun af farskólanum. Hörður Geirsson sagði frá farskólanum í myndum en hann hefur haldið utan um ljósmyndasafn farskólans frá upphafi.
Í Rauða-húsinu var snæddur léttur hádegisverður sem matreiddur var úr matreiðslubókinni „100 réttir matar“ eftir Guðmundu Nielsen, brún tær súpa með lauk og pylsum og sérríi bættu út í.
Að loknum hádegisverði var farið til Hveragerðis í Listasafn Árnesinga. Í Listasafni Árnesinga tók Hildur Hákonardóttir fyrrv. forstöðumaður á móti farskólanum í forföllum Ingu Jónsdóttur safnstjóra og kynnti safnið. Hildur flutti erindi Ingu Jónsdóttur Listasöfn á jaðrinum (sjá ítarefni efst til vinstri). Léttar veitingar voru í boði og gafst farskólagestum kostur á að skoða sýninguna Þræddir þræðir sem var í sýningarsölum LÁ. Að lokinni klukkutíma dvöl var haldið í rútuferð um Flóann. Í rútunni greindi farskólastjóri í stuttu máli frá þróun safnamála í Árnesþingi og í því helsta markverða sem sjá mátti á leiðinni, meðal annars endurgerð Tryggvaskála sem er elsta húsið á Selfossi.
Um kl. 15 var komið í Veiðisafnið á Stokkseyri. Stofnandi safnsins og safnstjórinn Páll Reynisson kynnti safnið og sýndi. Hér er á ferðinni einstakt safn af uppstoppuðum dýrum og veiðifærum.
Næsti viðkomustaður var Rjómabúið á Baugsstöðum. Þar tók Sigurður Pálsson bóndi á Baugsstöðum og húsvörður rjómabúsins á móti hópnum og sýndi. Sigurður hefur verið þátttakandi í farskólanum í fjölmörg skipti og sat m.a. fyrsta farskólann 1989. Í rútunum greindi Lýður Pálsson gjaldkeri stjórnar rjómabúsins frá starfseminni. Í rjómabúinu afhenti Nikulás Úlfar Másson forstöðumaður Húsafriðunarnefndar ríkisins húsverði og gjaldkera nýgert teikningasett af rjómabúinu eftir Jón Pálsson arkitekt.
Áfram var haldið um Flóann og næst komið við í Austur-Meðalholtum í Gaulverjabæjarhreppi. Þar tóku hjónin Kristín Bjarnadóttir og Hannes Lárusson við hópnum og kynntu sjálfseignarstofnunina Íslenski bærinn í nýreistu sýningarhúsi skammt frá bæjarhólnum. Í Austur-Meðalholtum voru í boði veitingar, bjórinn Skjálfti frá Ölfusholt brugghús – í boði Byggðasafns Árnesinga, og ostar í boði MS á Selfossi.
Eftir að farskólanemar höfðu skoðað sig um á staðnum, gætt sér á drykk og osti og spurt Hannes og Kristínu um framkvæmdirnar var haldið af stað í rúturnar og ekið yfir í Rangárþing.
Komið var að Kirkjubæ II í Fljótshlíð þar sem rekin er ferðaþjónusta. Þar er að finna Meyjarhofið Móðir Jörð svonefnda sem Jón heitinn Ólafsson reisti af eigin rammleik úr torfi og grjóti sem aðstöðu til að taka á móti ferðamannahópum. Hann fór þar gjarnan með gamanmál og rímur fyrir gesti sína. Jón Ólafsson lést úr krabbameini sumarið 2008 ríflega fimmtugur að aldri. Ekkja hans Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir tók á móti farskólanemum og sagði frá Meyjarhofinu og Jóni heitnum.
Þá var ekið á Hvolsvöll og farskólanemar komu sér fyrir á Hótel Hvolsvelli og Hótel Rangá.
Um kvöldið komu farskólanemar saman í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Þar tók Þuríður Halldóra Aradóttir forstöðumaður Sögusetursins og ferðamálafulltrúi Rangárþings eystra á móti hópnum og kynnti starfsemina. Þar má finna sýninguna Á Njáluslóð, Kaupfélagasafnið, Gallerí Orm og Söguskálann. Í Söguskálanum snæddu farskólanemar kvöldverð og tóku hraustlega til matar síns. Fordrykkur var í boði Rangárþings eystra.
Fimmtudagur 17. september
Dagskrá farskólans á fimmtudeginum hófst kl. 9 í Félagsheimilinu Hvoli. Frá 9 til 11,30 voru fyrirlestrar og Helga Maureen Gylfadóttir var fundarstjóri.
Erindi: Þór Hjaltalín: Hvert á hlutverk safna að vera í varðveislu byggingararfsins?
Erindi: Haukur Ingi Jónasson: Hlutverk safna í almenningsfræðslu á breytingartímum.
Erindi: Frosti Jóhannsson: Sarpur og opnun gagnagrunna á veraldarvefinn.
Umræður vinnuhópa Farskólans hófust rétt fyrir hádegi og héldu svo áfram að hádegisverði loknum. Umræðuhópar voru fimm talsins:
Hlutverk Farskólans í breyttri mynd safnamenntunar. Leiðandi í umræðu Ágústa Kristófersdóttir og Sigurjón Baldur Hafsteinsson.
Listasöfn á jaðrinum: Leiðandi í umræðu Inga Jónsdóttir.
Hvert á hlutverk safna að vera í varðveislu byggingararfsins? Leiðandi í umræðu Jón Sigurpálsson og Guðný Gerður Gunnarsdóttir.
Hlutverk safna í fullorðinsfræðslu á breytingartímum. Leiðandi í umræðu Sigurborg Hilmarsdóttir og Guðný Dóra Gestsdóttir.
Sarpur og opnun gagnagrunna á veraldarvefinn. Leiðandi í umræðu Dagný Heiðdal og Gísli Helgason.
Að loknu sídegiskaffihléi hittust ýmsir faghópar og báru saman bækur sínar. Þeir hópar sem komu saman voru Samtímavarðveislan (SAMDOK), Samband Íslenskra Sjóminjasafna, safnstjórar Byggðasafna, ljósmyndavarðveisluhópur og öryggishópur.
Um leið og hópar tóku til starfa var í aðalsal Hvols opnað Markaðstorg safna og safnamanna. Þar voru fyrirtæki sem „þjónusta“ söfn með kynningu. Þeir þjónustuaðilar sem komu á markaðstorgið voru R3 ráðgjöf ehf, Jón Þórisson leikmyndahönnuður, Safnafræði við HÍ, Þjóðbúningastofan, Rými ehf og Prentsmiðjan Oddi. Fleiri boðuðu komu sína en boðuðu forföll á síðustu stundu. Markaðstorgið var nýmæli í starfi farskólans og sýndu farskólanemar því mikinn áhuga og er vonandi að markaðstorgið geti orðið árviss hluti farskólans.
Árshátíð FISOS var haldinn á Hótel Hvolsvelli fimmtudagskvöldið 17. september. Veislustjóri var Hvolsvellingurinn Ísólfur Gylfi Pálmason en trúbadorinn Ólafur Þórarinsson, Labbi í Glóru, hélt uppi fjörinu þar til diskótek Harðar og Þrastar tók við og spilaði tónlist af geisladiskum. Árshátíðin fór vel fram og skemmti fólk sér hið besta.
Föstudagur 18. september
Að loknum morgunverði var haldið frá Hvolsvelli til Skóga undir Eyjafjöllum. Þar tóku Sverrir Magnússon og Þórður Tómasson á móti farskólanemum og sögðu frá safninu og starfseminni. Farskólanemar skoðuðu safnasvæðið og komu svo saman í safnkirkjunni í Skógum þar sem Þórður Tómasson sagði frá kirkjunni og gripum hennar. Að lokum sungu kirkjugestir sálm undir stjórn Þórðar. Guðný Gerður Gunnarsdóttir kvaddi sér hljóðs og þakkaði Þórði fyrir einstakar móttökur og starf hans allt sem væri öðrum safnmönnum fyrirmynd.
Þá var gengið í Skógaskóla þar sem niðurstöður vinnuhópa frá deginum áður voru kynntar. Fundarstjóri var Lýður Pálsson. Niðurstöður hópanna má sjá hér á þessari síðu efst til vinstri ásamt erindum Ingu Jónsdóttur og Eiríks Þorlákssonar.
Að lokinni kynningu vinnuhópanna tók við dagskrárliðurinn Lagalegt umhverfi safna. Fundarstjóri var Harpa Þórsdóttir. Fyrst sagði Eiríkur Þorláksson frá stöðu lagafrumvarpa sem liggja fyrir hjá Mennta- og menningamálaráðuneytinu en þau hafa ekki hlotið afgreiðslu vegna sviptinga á vettvangi stjórnmála. Rakel Halldórsdóttir framkvæmdastjóri Safnaráðs sagði næst frá breyttum áherslum í úthlutunarreglum Safnaráðs. Umræður voru eftir framsögur þeirra Eiríks og Rakelar.
Þá skunduðu farskólanemar í hádegisverð í Skógakaffi. Þar var í boði íslensk kjötsúpa með ábót, rjómapönnukaka og kaffi/te í eftirrétt.
Að hádegisverði loknum hófst aðalfundur FÍSOS í Skógaskóla. Nýr formaður var kjörinn Guðný Dóra Gestsdóttir. Fráfarandi formaður er Ágústa Kristófersdóttir en frestað var kosningu næsta farskólastjóra. Farskólinn verður næst haldinn á Vesturlandi. Fundargerð aðalfundar má finna á heimasíðu FÍSOS.
Þegar aðalfundi var slitið tók Lýður Pálsson farskólastjóri til máls og þakkaði farskólanemum fyrir farsælt samstarf. Að endingu sleit Lýður farskólanum og óskaði viðstöddum góðrar heimferðar.
Kl. 15 lögðu farskólarúturnar af stað til Reykjavíkur.
Ljósm. Hörður Geirsson
(Látið bendilinn yfir táknið hér að neðan og notið örvatakka hnappaborðsins tiil að fara frá vinstri til hægri)
22/07/2010
Fjölbreyttar framvæmdir eru við Húsið um þessar mundir. Verið er að tjarga Húsið og mála glugga og má finna tjöruilminn um allt... Meira
08/07/2010
Íslenski safnadagurinn 11. júlí 2010
Íslenski safnadagurinn er haldinn hátíðlegur á sunnudaginn. Söfnin á Eyrarbakka og Stokkseyri taka vel á móti gestum sem og önn... Meira
Heimilisfang/Address:
Hafnarbrú 3, Eyrarbakka
Sími/Tel:
(+354) 483-1082
E-mail: husid@husid.com




